Jafnlaunastaðallinn

Undanfarin ár hefur verið í gangi sérstakt tilraunaverkefni um innleiðingu jafnlaunastaðalsins á vegum stjórnvalda og aðila vinnumarkaðarins. Afrakstur þeirrar vinnu er Jafnlaunastaðallinn ÍST 85:2012 sem er stjórnunarstaðall fyrir jafnlaunakerfi.

Þeir vinnustaðir sem hafa áhuga á að kynna sér jafnlaunastaðalinn og stoðefni tengt honum geta nú nálgast það efni (HÉR) á KOMPÁS vefnum.

Á vef Velferðarráðuneytisins (HÉR) er einnig að finna nýstofnaðan vef þar sem Jafnlaunastaðallinn er kynntur til sögunnar og ferli jafnlaunavottunar.