KOMPÁS auglýsir eftir sérfræðingi í viðskiptatengslum

KOMPÁS Þekkingarsamfélagið leitar eftir markaðs- og þjónustudrifnum einstaklingi til að styrkja KOMPÁS teymið. Áhersla viðkomandi verður á að virkja og styrkja tengsl við nýja og núverandi þátttakendur í þekkingarsamfélaginu.

Starfið felur í sér markaðssetningu, öflun nýrra þátttakenda, nýta samfélagsmiðla og annað sem eflir ávinning þátttakenda í þekkingarsamfélaginu. Þörf er á öflugum og fjölhæfum einstaklingi sem vill leggja sitt af mörkum við eflingu faglegrar stjórnunar og uppbyggingu þekkingarsamfélagsins.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Háskólamenntun er nýtist í starf.
  • Viðkomandi búi yfir góðri þekkingu og reynslu á sviði faglegrar stjórnunar.
  • Markaðs- og sölumál og nýting samfélagsmiðla.
  • Mjög góð samskiptahæfni, gott tengslanet og þekking á atvinnulífinu.
  • Góð ritfærni. Íslenska, enska og æskilegt eitt Norðurlandamál.
  • Skipulögð og öguð vinnubrögð. Geta unnið sjálfstætt í krefjandi aðstæðum.
  • Góð þekking og reynsla á notkun hugbúnaðar er nýtist í starfi.

Viðkomandi starfsmaður þarf að koma af miklum krafti inn í vaxandi teymi þar sem oft þarf að vera hægt að ganga í fjölbreytt störf til að mæta þeim væntingum sem gerðar eru til KOMPÁS Þekkingarsamfélagsins. Í því getur einnig falist verkefni við öflun fjármagns til frekari vaxtar, erlend samskipti, starfa með vinnuhópum og í nánu samstarfi við lykil hagsmunaaðila að baki KOMPÁS Þekkingarsamfélagsins.

KOMPÁS er samstarfsvettvangur fjölda fyrirtækja, stofnana, háskóla, fræðsluaðila, stéttarfélaga og fleiri um miðlun hagnýtrar þekkingar, sbr. verkferla, eyðublaða, gátlista, vinnulýsinga, samninga, reiknivéla, myndbanda og fleira. Í dag eru yfir 2.500 skjöl og myndbönd í verkfærakistu KOMPÁS.

Umsóknir sendist á bf@kompas.is ásamt starfsferilskrá og kynningarbréfi þar sem tilgreint er hvernig hæfileikar viðkomandi nýtast í starfi og hvað viðkomandi getur gert fyrir þekkingarsamfélagið.

Umsóknarfrestur er til 31. ágúst 2018.
Nánari upplýsingar veitir Björgvin Filippusson, bf@kompas.is, s 864 4604.