Hugtakasafnið-Viðburður 16. mars

KOMPÁS Þekkingarsamfélagið býður til opins viðburðar þann 16. mars kl. 13:00-14:00 í fundarsalnum Fenjamýri á 1. hæð Grósku.
 
Kynnt verður veflausn Hugtakasafnsins sem er samstarfsverkefni fjölda aðila innan sem utan Þekkingarsamfélagsins. Hugtakasafnið er spunnið út frá ferðaþjónustunni en nær jafnframt til þarfa hins opinbera, þjónustuaðila, verslunar og þjónustu, auk verndunar íslenskrar tungu. Vefurinn heldur utan um mörg hundruð hugtök og skilgreiningar þeirra. Hugtakasafnið vex og dafnar enn frekar með virku samstarfi og hvetjum við alla til að kynna sér afrakstur vinnunnar og framþróun.
 
Fram koma:
- Kristín Sif Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri Atlantik
- Gunnar Þór Jóhannesson, prófessor í Land- og ferðamálafræði HÍ
- Ásta Kristín Sigurjónsdóttir, framkvæmdastjóri Íslenska ferðaklasans
- Sindri Másson og Stefán Orri Eyþórsson, umsjón hugbúnaðar
 
Fundarstjóri: Björgvin Filippusson, stofnandi KOMPÁS Þekkingarsamfélagsins
Fundurinn verður tekinn upp og geta áhugasamir nálgast upptökur hjá kompas@kompas.is
Kaffi og konfekt verður í boði. Öll velkomin!

Taktu daginn frá – Merktu endilega við „Mæta“ – Hlökkum til að sjá þig!